Húseigendafélagið
 Prentvæn útgáfa

Öflugt starf í 87 ár

Húseigendafélagið var stofnað árið 1923 og er almennt hagsmunafélag allra fasteignaeigenda á Íslandi, hvort sem fasteignin er íbúð, einbýlishús, atvinnuhúsnæði, land eða jörð.

Félagar eru bæði einstaklingar, fyrirtæki og félög, þ.m.t. húsfélög í fjöleignarhúsum. Félagsmenn eru um átta þúsund og hefur farið jafnt og þétt fjölgandi undanfarna áratugi.

Fréttir | 02. febrúar 2012
Fólk og dýr í fjölbýli.
Um hunda, ketti, blindan hrút og ást í meinum.
Til Húseigendafélagsins rata mörg deilumál vegna dýra í mannheimum, einkum hunda og katta í fjölbýli, sem valda ama og ónæði og úlfúð. Þau dýr hafa fylgt manninum frá örófi og sú taug er römm og inngróin. Það er talinn allt að því helgur réttur manna að halda gæludýr en sá réttur er ekki alger og takmarkast af rétti granna til að lifa eðlilegu og heilbrigðu lífi án ónæðis og óþæginda, sem af dýrum getur stafað.. Það fylgir því mikl ábyrgð að halda hunda og ketti, bæði gagnvart dýrunum sjálfum og eins gagnvart umhverfinu og fólki sem í námunda er.
:: meira
Fréttir | 02. febrúar 2012
Fjölbýli í blíðu og stríðu.
Kynleg hljóð, kjötvinnsla og kattahvörf.
Í fjölbýlishúsum er fólk undir sama þaki og inn á gafli hvert hjá öðru. Slíkt hefur marga kosti en býður á hinn bóginn upp á vandamál, sem flest má rekja til mannlegra breiskleika og skorti á þeim þroska, tillitssemi og umburðarlyndi, sem er forsenda fyrir heilbrigðu og farsælu sambýli. Gott sambýli byggist á sífelldri málamiðlun þar sem gagnkvæmur skilningur, virðing, tillitssemi og umburðarlyndi vega þyngst. Fólk er misjafnt eins og það er margt. Einn vill fjör en annar frið. Einn vakir og bröltir meðan annar vill sofa. Einn vill þetta og annar vill hitt. Einn er fyrirferðamikill og hávær meðan annar er músin sem læðist. Á einn bítur ekkert meðan annar er viðkvæmnin uppmáluð. Meðalhófið er vandratað. Góður granni er gulli betri.
:: meira
Fréttir | 24. janúar 2012
Hvað er Húseigendafélagið?
SHG
Spurt er: Hvað er Húseigendafélagið? Fyrir hvað stendur það? Hver eru markmið þess og baráttumál? Hver er hagurinn af félagsaðild? Hverju hefur félagið áorkað? Hér verður leitast við að svara þessum spurningum. Sérstaklega verður gerð grein fyrir aðild húsfélaga og húsfundaþjónustu félagsins en nú er einmitt genginn í garð tími aðalfunda í húsfélögum þar sem teknar eru teknar ákvarðanir sem varða mikla fjármuni hagsmuni. Þar er mikið í húfi og vissara að fara rétt að til að fyrirbyggja skakkaföll og sneiða hjá ógöngum.
:: meira
Fréttir | 17. janúar 2012
Húsaleiga
SHG
Húseigendafélagið hefur í tæp 90 ár gætt hagsmuna leigusala og stuðlað að auknu öryggi og heilbrigðum viðskiptum og leigumarkaði og barist fyrir réttarbótum á því sviði. Félagið gerir leigusamninga og veitir ráðgjöf í leigumálum. Þá veitir félagið liðsinni þegar vanefndir verða en leiguvanskil hafa aukist upp á síðkastið.
:: meira
Fréttir | 04. nóvember 2011
Úrræði húsfélags við vanefndir og brot eiganda
Í 55. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús er fjallað um úrræði húsfélags við vanefndir og brot eigenda. Þar kemur meðal annars fram, að gerist eigandi, annar íbúi húss eða afnotahafi sekur um gróf eða ítrekuð brot á skyldum sínum gagnvart húsfélaginu eða eigendum, einum eða fleirum, þá geti húsfélagið lagt bann við búsetu og dvöl hins brotlega í húsinu, gert honum að flytja og krafist þess að hann selji eignarhluta sinn. Áður en húsfélag grípur til slíkra aðgerða skuli það a.m.k. einu sinni skora á hinn brotlega að taka upp betri siði og vara hann við afleiðingum þess ef hann lætur sér ekki segjast.
:: meira
Fréttir | 28. október 2011
Nýr útboðsvefur fyrir neytendur opnaður
Naglinn eða www.nagli.is er nýr neytendamiðaður vefur sem stuðlar að heiðarlegum viðskiptum verktaka og verkkaupa. Markmið Naglans er meðal annars að spara báðum aðilum tíma og pening og minnka umstang við framkvæmdir. Heimasíða Naglans er vettvangur fyrir bæði iðnaðarmenn og þá sem vilja notfæra sér þjónustu þeirra. Væntanlegur kaupandi sendir lýsingu á verki sem hann vill láta vinna fyrir sig t.d. klæðningu á húsi. Iðnaðarmenn geta síðan sent viðkomandi tilboð í verkið og verkkaupinn fær upp ýmsar upplýsingar um þá sem bjóða þjónustuna eins og menntun, réttindi og kennitölu þeirra.
:: meira
Fréttir | 30. júní 2011
Heimreiðir. Aðkeyrslur. Bílastæði.
SHG
Heimreiðir eru algengt deiluefni í minni fjölbýlishúsum þar sem innkeyrsla er að bílskúr eða bílskúrum sem tilheyra sumum en ekki öllum. Deilt er um rétt til að leggja bílum í innkeyrslu og framan við bílskúra, um aðkomuréttinn og kostnað við standsetningu, viðhald og rekstur. Réttur eigenda fer í fyrsta lagi eftir því sem segir í þinglýsum heimildum um húsið en þar er sjaldnast stafur um það. Menn deila og stundum í blóðillu hver eigi innkeyrsluna og hver megi leggja hvar. Ef ekkert segir í þinglýstum gögnum er lóðin, þar á meðal innkeyrslan, í sameign allra en ekki í séreign bílskúrseigenda. Bílskúrseigendur eiga hins vegar rétt á hindrunarlausri aðkomu að bílskúrum sínum og það þýðir að aðrir mega ekki tálma eða hindra hana með því að leggja bílum þar að staðaldri a.m.k. Að því leyti er réttur þeirra aukinn umfram aðra.
:: meira
Fréttir | 30. júní 2011
Hundar, kettir, fólk og friður í fjölbýli
SHG
Til Húseigendafélagsins rata mörg deilumál vegna hunda og katta í fjölbýli sem eru þau gæludýr sem oftast valda ónæði, raska ró og kveikja úlfúð í fjölbýli. Þau dýr hafa fylgt manninum frá örófi og sú taug er mjög römm og inngróin. Það er víðast talinn allt að því helgur réttur manna að halda gæludýr en sá réttur er ekki alger og takmarkast af rétti granna til að lifa eðlilegu og heilbrigðu lífi án ama, ónæðis og óþæginda, sem af dýrum stafar eða getur stafað, standi eigendur sig ekki í stykkinu. Einhver sagði, og örugglega með réttu, að hundurinn sé besti vinur mannsins. En ef maðurinn er besti vinur hundsins, þá á hundgreyið ekki sjö daganna sæla, bætti annar vitringur við.
:: meira
Fréttir | 15. apríl 2011
Ályktun aðalfundar Húseigendafélagsins 2011 vegna 15 metra reglunnar við sorplosun í Reykjavík
Á aðalfundi Húseigendafélagsins, sem haldinn var þann 14. apríl 2011, var samþykkt ályktun vegna fyrirhugaðrar álagningar sorphirðugjalds sem lagt verður á þar sem sorpílát eru í meira en 15 metra fjarlægð frá sorphirðubíl.
:: meira
Fréttir | 11. apríl 2011
Aðalfundur Húseigendafélagsins 14. apríl 2011
Aðalfundur Húseigendafélagsins 2011 var haldinn fimmtudaginn 14. apríl nk. í sal Ásatrúarfélagsins, Síðumúla 15, Reykjavík. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Smellið á „meira” til þess að sjá upplýsingar um stjórnarkjör.
:: meira
Greinar | 04. apríl 2011
Stjórn húsfélaga og aðkeypt ráðgjöf og þjónusta
SHG
Stjórnarseta í húsfélögum er ekki eftirsótt vegsemd. Stjórnarstörf eru tímafrek, vandasöm og oft vanþakklát. Það er nauðsynlegt að stjórnir og eigendur yfirleitt kunni skil á þeim reglum sem gilda um húsfélög og stjórn þeirra. Hér er farið yfir þessar reglur, sem og reglur um það hvenær stjórn er heimilt að fela utanaðkomandi aðila verkefni sín og skyldur eða kaupa aðstoð og ráðgjöf sérfræðinga, svo sem endurskoðenda, bókara, verkfræðinga og lögmanna.
:: meira
Forsvarsmenn Strax ehf. Frá vinstri: Þorsteinn H. Gestsson, Guðmundur K. Kárason, Davíð O. Ágústsson og Jóhannes M. Sigurðarson.
Forsvarsmenn Strax ehf. Frá vinstri: Þorsteinn H. Gestsson, Guðmundur K. Kárason, Davíð O. Ágústsson og Jóhannes M. Sigurðarson.
Fréttir | 04. apríl 2011
Hagkvæm og örugg útboð á framkvæmdum, stórum sem smáum
Ný þjónusta á vegum Strax ehf.
Strax ehf. er sprotafyrirtæki sem vinnur að þjónustu sem mun gera neytendum kleift að bjóða út framkvæmdir, stórar sem smáar, á öruggan máta með litlum tilkostnaði, auk þess að þjónusta iðnaðarmenn með því að veita þeim tækifæri til að koma sér á framfæri, bjóða í verk og byggja upp ferilskrá vegna fyrri verka. Þjónustan mun fara fram í gegnum vefsvæðið nagli.is og er stefnt að því að opna fyrir ókeypis prufuútgáfu í júlí.
:: meira
Húseigendafélagið • Síðumúla 29 • 108 Reykjavík • Sími 588-9567 • Fax 588-9537 • Kennitala 640169-5249 • Vsk.nr. 11892 • postur@huso.is