Félag atvinnurekenda, Húseigendafélagið og Landssamband eldri borgara efna til morgunverðarfundar á Grand Hóteli Reykjavík föstudaginn 25. október kl. 8-10, undir yfirskriftinni „Eru fasteignir féþúfa?“ Umræðuefnið er álagning fasteignagjalda á einstaklinga og fyrirtæki og hvernig þessi skattheimta hefur á undanförnum árum vaxið langt umfram allar eðlilegar viðmiðanir. Sífellt þyngri skattbyrði hefur áhrif á félagsmenn í öllum þessum samtökum.
Dagskrá:
8.30 Þórir Sveinsson, stjórnarmaður í Húseigendafélaginu: Álögur á fasteignir
8.50 Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur hjá Reykjavík Economics: Eru fasteignaskattar orðnir of íþyngjandi fyrir atvinnulífið?
9.10 Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB: Örsögur úr raunveruleikanum
9.30 Fyrirspurnir og umræður
Fundarstjóri er Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Festi.
Fundurinn er haldinn í fundarsalnum Hvammi á jarðhæð Grand Hótels Reykjavík. Léttur morgunverður er í boði frá kl. 8. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir, en skráning er nauðsynleg, sjá hér hlekk á síðu FA http://www.atvinnurekendur.is/frettir/morgunverdarfundur-25-oktober-eru-fasteignir-fethufa/
Einnig má nálgast viðburðinn á facebook hér: https://www.facebook.com/events/423851778321203/
Þórir Sveinsson
Magnús Árni Skúlason
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir
2014 © Húseigendafélagið.